Home page Aðalsíða      Booking bókunarsíða      Pictures myndir      Location staðsetning


CJA gisting
er í um 2km fjarlægð frá Laugum, á bænum Hjalla. Á Laugum er bæði banki, verslun, veitingastaður og sundlaug, s.s. allt það mikilvægasta. Frá Laugum er eingöngu um hálftíma akstur til Akureyrar (um Vaðlaheiðargöng), Húsavíkur og í Mývatnssveit. Gistiheimilið er uppgert fyrrum einbýlishús með 4 svenherbergjum, 2 snyrtingum og 1 sturtu. Þegar leigt er stakt herbergi fá gestir morgunmat en hafa ekki aðgang að fullbúnu eldhúsi. Þó er aðgangur að kaffivél, hraðsuðukatli, örbylgjuofni, ísskáp og leirtau. Þegar gistihúsið er leigt í heilu lagi sem íbúð er morgunverður ekki innifalinn en gestir fá aðgang að fullbúnu eldhúsi. Sendið endilega fyrirspurnir í tölvupósti ef eitthvað er óljóst eða ef þið hafið einhverjar séróskir. Með því að bóka beint á heimasíðu CJA fæst 10% afsláttur af fullu verði en greiðsla er tekin samdægurs af korti, greitt er fyrirfram. Rétt er þó að benda á að ef afpantað er með góðum fyrirvara fæst 90% endurgreiðsla. Vertu velkominn, við tökum á móti þér í eigin persónu og erum alltaf til staðar ef eitthvað er.
Lítið hjónaherbergi
Stærð: 8-9 m²

Lýsing: Í þessu herbergi er 140x200 cm hjónarúm, náttborð, náttlampi, felliborð, stóll, handlaug, spegill, snagar og myrkvunargluggatjöld. Sé þess óskað er hægt að setja inn ungbarnarúm. Á gólfinu er harðparket og nægar innstungur eru í herberginu. Húsið er hitað með lágvarma hitaveitu og í herberginu er pottofn með einfaldri hitastýringu, Danfoss krana.
MonTueWedThuFriSatSun
       
       
       
       
       
       
Innskráning
       
       

Standard Rate
Breakfast included

Velja

Tveggja manna herbergi
Stærð: 10 m²

Lýsing: Í þessu herbergi eru tvö 90x200 cm einstaklingsrúm. Sé þess óskað sérstaklega er hægt að setja þau saman. Í herberginu er: náttborð og náttlampi, felliborð og stóll, handlaug og spegill, snagar og myrkvunargardínur. Sé þess óskað sérstaklega er hægt að setja inn ungbarnarúm. Á gólfinu er harðparket og nægar innstungur eru í herberginu. Húsið er hitað með lágvarma hitaveitu og í herberginu er pottofn með einfaldri hitastýringu, Danfoss krana.
MonTueWedThuFriSatSun
       
       
       
       
       
       
Innskráning
       
       

Standard Rate
Breakfast included

Velja

MonTueWedThuFriSatSun
       
       
       
       
       
       
Innskráning
       
       
Non Refundable
including breakfast
Velja

Þriggja manna herbergi
Stærð: 12 m²

Lýsing: Í þessu herbergi eru þrjú einstaklingsrúm, náttborð, náttlampi, felliborð, stóll, handlaug, spegill, snagar og myrkvunargardínur. Sé þess óskað sérstaklega er hægt að setja inn ungbarnarúm. Á gólfinu er harðparket og nægar innstungur eru í herberginu. Húsið er hitað með lágvarma hitaveitu og í herberginu er pottofn með einfaldri hitastýringu, Danfoss krana.
MonTueWedThuFriSatSun
       
       
       
       
       
       
Innskráning
       
       

Standard Rate
Breakfast included

Velja

CJA íbúð
Við höfum gert einbýlishúsið upp og leigjum að öllu jöfnu út stök herbergi í því og rekum sem gistiheimili. Stöku sinnum bjóðum við allt húsið á leigu sem heild sem notalega íbúð. Frábær valkostur fyrir pör sem vilja gott pláss og algjört næði eða fyrir hóp sem gerir kröfur og vill geta skipt sér þægilega niður á herbergi. Í búðinni eru 4 herbergi, öll með handlaug. Tvö lítil herbergi með litlu hjónarúmi, eitt herbergi með tveimur einstaklingsrúmum og eitt herbergi með þremur einstaklingsrúmum. Gott er að fá upplýsingar með bókun hvernig óskað er eftir að herbergin séu útbúin.
MonTueWedThuFriSatSun
       
       
       
       
       
       
Innskráning
       
       
Velja

Greiðsluupplýsingar:
Dvölin greiðist að fullu við bókun.

Afbókunarreglur:
Hægt er að afpanta bókun. Ef meira en 14 dagar eru fram til komudags endurgreiðast 90% af dvalarkostnaði. Ef innan við 14 dagar eru fram til komudags greiðist 1 nótt að fullu. Ef ekki er afpantað en jafnframt ekki mætt til gistingar fæst engin endurgreiðsla.